Umfjöllunin um þennan leik ætti að vera "Ekki spyrja spurninga. Keyptu hann bara og spilaðu!" :) En samt, fyrst ég er að þessu, ætla ég að skrifa nokkur orð um hann. Þú ert wannabe sjóræningi sem heitir Guybrush Threepwood. Þú ert á einangraðri eyju í Karabíska hafinu sem heitir Monkey Island, að sjálfsögðu :) Auðvitað getur enginn söguþráður verið fullkominn án fallegrar stúlku sem þú verður ástfanginn af, og vondi kallinn sem vill konuna sem þú elskar, og vill þig dauðann :) Þú finnur allt þetta í Monkey Island. Fyrir utan fáránlega söguþráðinn, endalausa brandara og óendanlega skemmtun, þá hefur þessi leikurlíklegast upp á að bjóða hugmyndaríkustu samtöl, bakgrunn og tónlist sem hefur nokkurn tíman birst á tölvuskjá. Þetta dregur þig inn í heiminn, hvort sem þér líkar það betur eða verr. Ég ábyrgist það að þú munt festast við þennan :) Ég vona að þetta hafi fjarlægt allar illar grunsemdir um þennan leik, ef þær voru einhverjar fyrir. Nóg sagt, kauptu hann og spilaðu spilaðu spilaðu! :)